Sagði af sér í kjölfar mannfalls í mótmælum

Fyrrverandi forsætisráðherra Súdan, Abdalla Hamdok.
Fyrrverandi forsætisráðherra Súdan, Abdalla Hamdok. AFP

Abdalla Hamdok, forsætisráðherra Súdan, hefur sagt af sér eftir að öryggissveitir myrtu þrjá mótmælendur í dag.

Mótmælendurnir voru að mótmæla herforingjastjórn landsins. Á vef CCN er greint frá því að tveir voru skotnir í bringuna og þriðji lést úr höfuðáverkum. 

Þrír létust í mótmælunum í dag.
Þrír létust í mótmælunum í dag. AFP

Í október lýsti Abdel Fattah al-Bur­h­an, yf­ir­hers­höfðingi og forsprakki vald­aráns­ins, yfir neyðarástandi í Súd­an og steypti rík­is­stjórn­inni af stóli. Hamdok hafði verið í stofufang­elsi síðan en mik­il mót­mæli brut­ust út eft­ir vald­aránið. 

Í lok nóvember komust al-Burhan og Hamdok síðan að þeirri niðurstöðu að Hamdok tæki aftur við stjórn landsins. 

Þúsundir mótmæltu hins vegar þeirri niðurstöðu og litlum árangri ríkisstjórnar Hamdok sem herinn heldur í heljargreipum. 

Mótmæli í höfuðborginni Khartoum.
Mótmæli í höfuðborginni Khartoum. AFP

Að minnsta kosti 57 hafa látist í mótmælum síðan Hamdok tók aftur við stjórn í nóvember.

„Ég hef reynt að gera mitt besta í að koma í veg fyrir að landið verði fyrir hörmungum,“ sagði Harmdok í sjónvarpsávarpi nokkrum klukkustundum eftir mótmælin. Þá sagði hann Súdan vera á hættulegum tímamótum. 

Hamadok er menntaður viðskiptafræðingur og hefur unnið fyrir Sameinuðu þjóðirnar og ýmis samtök í Afríku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert