Yfirmaður leyniþjónustu handtekinn fyrir landráð

Karim Masimov, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu Kasakstan.
Karim Masimov, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu Kasakstan. AFP

Fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu Kasakstan hefur verið handtekinn vegna gruns um landráð. Karim Masimov var rekinn í kjölfar mikilla óeirða í landinu vegna mikl­ar verðhækk­an­ir á orku og olíu.

„Vegna gruns um að hann hafi framið glæp hefur fyrrverandi yfirmaður KNB [þjóðaröryggisnefnd Kasakstan] Masimov verið handtekinn og vistaður í bráðabrigða gæslu, ásamt öðrum,“ sagði í yfirlýsingu frá þjóðaröryggisnefndinni. 

Góðvinur Nazarbayev

Á vef The Guardian er greint frá því að Masimov hefur lengi verið viðloðinn fyrrverandi forseta Kasakstan, Nursultan Nazarbayev. 

Nazarbayev sagði af sér árið 2019 eftir tæplega 30 ár á valdastóli. Stjórn Nazarbayev sætti ásökunum um einræði, spillingu og mannréttindabrot.

Á stjórnartíð Nazarbaye var Masimov tvisvar forsætisráðherra ásamt því að gegn stöðu yfirmanns forsetaembættisins.

„Skjóta án viðvar­ana“

Fjölmargir hafa látist í óeirðunum sem hafa geisað undanfarna daga og kveikt hefur verið í opinberum byggingum. 

Kveikt hefur verið í fjölda opinberra bygginga í Kasakstan.
Kveikt hefur verið í fjölda opinberra bygginga í Kasakstan. AFP

Í gær sagði Kassym-Jom­art Tokayev, for­seti Kasakst­an, að búið sé að mestu að ná tök­um á ástand­inu. Þá sagðist hann hafa leyft ör­ygg­is­sveit­um að „skjóta án viðvar­ana“.

Tokayev greindi einnig frá því að friðargæslulið frá Sam­vinnu- og ör­ygg­is­banda­lagi fyrr­um sov­ét­lýðvelda (CSTO) sem Rúss­ar hafa yf­ir­um­sjón með, sé komið til Kasakst­an.

Erfitt að fá Rússa til að fara

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði við því í gær að Kasakstan gæti átt erfitt með að draga úr áhrifum Rússa eftir að hafa boðið friðargæsluliði CSTO til landsins.

„Einn lærdómur sem við höfum frá nútíma sögu er að þegar Rússar eru komnir inn í húsið þitt, þá er stundum erfitt að fá þá til þess að fara,“ sagði Blinken í gær.

„Þegar Rússar eru komnir inn í húsið þitt, þá er …
„Þegar Rússar eru komnir inn í húsið þitt, þá er stundum erfitt að fá þá til þess að fara,“ sagði Blinken í gær. AFP

Þá hvatti bandaríska utanríkisráðuneytið starfsmenn ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Kasakstan að yfirgefa landið ásamt fjölskyldum sínum. 

Blinken geri grín að hræðilegum atburðum

Yfirvöld í Rússlandi sögðu í dag ummæli Blinken vera „ruddaleg“ og að Blinken væri að gera grín að þeim hræðilegu atburðum sem ættu sér nú stað í Kasakstan. 

„Ef Antony Blinken hefur svo mikinn áhuga á sögukennslu, þá er hér ein sem kemur upp í hugann. Þegar Bandaríkjamenn eru í þínu húsi þá getur verið erfitt að halda lífi sínu, að koma í veg fyrir að vera nauðgað eða rændur,“ sagði í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Rússlands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert