Segir það „skyldu sína“ að koma Johnson úr embætti

Dom­inic Cumm­ings, fyrr­ver­andi ráðgjafi Boris John­son.
Dom­inic Cumm­ings, fyrr­ver­andi ráðgjafi Boris John­son. AFP

Dom­inic Cumm­ings, fyrr­ver­andi ráðgjafi Boris John­son, forsætisráðherra Bretlands, segir það vera „skyldu sína“ að koma Johnson úr ráðherraembætti.

Cummings hefur verið mjög gagnrýnin á fyrrverandi yfirmann sinn og meðal annars kallað hann „algjöran asna (e. fuckwit)“.

The Guardian greinir frá því að Cummings hafi sent sönnunargögn til Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, sem rannsakað hefur sótt­varna­brot­ í Down­ingstræti.

Cummings segir það vera „óþægilegt en nauðsynlegt starf“ að koma forsætisráðherranum úr embætti. 

Búist er við að Johnson verði afhent skýrsla Grey á næstu dögum en að hún verði að stórum hluta yfirstrikuð til að koma í veg fyr­ir mögu­lega hlut­drægni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert