Finnar stefna á að aflétta öllu í febrúar

Sanna Marin greindi frá tíðindum í dag.
Sanna Marin greindi frá tíðindum í dag. AFP

Finnar stefna að því að aflétta öllum takmörkunum vegna kórónuveirunnar í febrúar. Sanna Marin, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu á fundi með fjölmiðlum í dag. Finnska ríkisútvarpið greinir frá.

Ríkisstjórnin mun funda á miðvikudag til að ræða frekari breytingar á aðgerðum, en í síðustu viku var tekin ákvörðun um að farið yrði í afléttingar strax í þessari viku.

Frá og með deginum í dag mega veitingastaðir hafa opið til klukkan 21, en barir og krár verða áfram að hætta áfengissölu klukkan 17 og þurfa að loka klukkan 18

Takmörkunum aflétt á landamærunum

Veitingastaðir mega áfram krefja viðskiptavini um framvísun kórónuveiruskírteinis, en það veitir þó ekki undanþágu frá reglum um áfengissölu eða opnunartíma. Þannig verður það áfram fram í miðjan febrúar.

Í dag má einnig opna líkamsræktarstöðvar og sundlaugar á Uusimaa svæðinu

Á landamærum Finnlands verður öllum takmörkunum aflétt í dag fyrir farþega frá Schengen-svæðinu, sem og öðrum löndum Evrópusambandsins sem ekki tilheyra Schengen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert