Volodimír Zelenskí forseti Úkraínu ávarpaði rússnesku þjóðina eftir miðnætti í Kænugarði í kjölfar þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafnaði boði hans um viðræður.
Í ávarpi sínu sagði Zelenskí meðal annars að framferði yfirvalda í Rússlandi gæti orðið upphafið af stórstyrjöld í Evrópu.
„Kveikjan gæti komið upp úr þurru, af minnsta tilefni, af litlum neista sem gæti brennt allt til kaldra kola. Ykkur er sagt að þessi neisti muni frelsa íbúa Úkraínu, en úkraínska þjóðin er nú þegar frjáls. Ykkur er sagt að við séum nasistar, en hvernig getur þjóð sem gaf 8 milljón mannslíf í baráttuna gegn nasistum stutt nasista? Hvernig get ég verið nasisti? Segið það við afa minn sem fór í gegnum heila heimstyrjöld sem fótgönguliði í sovéska hernum og lést sem hershöfðingi í frjálsri Úkraínu,“ sagði Zelenskí.
„Ykkur er sagt að við hötum rússneska menningu. Hvernig hatar nokkur menningu annars? Nágrannar göfga menningu hvors annars, þó það geri þá ekki að einu, það gerir okkur ekki að ykkur. Við erum ólík, en það er engin ástæða fyrir okkur að vera óvinir,“ sagði forsetinn.
Zelenskí hvatti rússnesku þjóðina til að hlusta á rödd rökseminnar. „Íbúar Úkraínu vilja frið, yfirvöld í Úkraínu vilja frið. Við viljum frið og gerum allt til þess að halda honum. Við viljum ekki stríð,“ sagði forsetinn sem sagði ávarp sitt væri af tilefni af þögn Rússlandsforseta.
„En ef við sætum árás, ef einhver reynir að ræna okkur landi okkar, frelsi okkar, lífi okkar eða lífi barna okkar, þá munum við verja okkur. Við munum ekki ráðast á ykkur, en við munum verja okkur,“ sagði Zelenskí.
„Stríð þýðir þjáningar, blóðsúthellingar og dauða þúsunda – tugþúsunda. Ykkur er sagt að Rússlandi stafi ógn af Úkraínu. Þannig var það ekki í fortíðinni, þannig er það ekki núna og þannig verður það ekki í framtíðinni.“
Þá sagði Zelenskí að þeir sem helst vilji forðast stríð séu þeir sem munu koma verst út úr því; almennir borgarar. Það séu aftur á móti almennir borgarar sem geti komið í veg fyrir stríð og að hann sé sannfærður um að á meðal rússnesku þjóðarinnar séu einstaklingar sem vilji og geti lagt sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að styrjöld brjótist út.
„Ég veit að þessi ræða mín verður ekki sýnd í sjónvarpi í Rússlandi, en íbúar Rússlands þurfa að sjá hana. Þeir þurfa að vita sannleikann. Sannleikurinn er sá að við þurfum að stöðva þetta áður en það verður um seinan og er leiðtogar Rússlands vilja ekki setjast og ræða um frið við okkur, þá þurfum við kannski að ræða við ykkur. Vilja Rússar stríð? Ég vil endilega fá svar við þeirri spurningu. En svarið veltur á ykkur, íbúum Rússlands.“