Sjónvarpsturninn sprengdur og útsendingar rofnar

Frá sprengingunni í dag.
Frá sprengingunni í dag. Ljósmynd/Verkhovna Rada

Rússnesk eldflaug sprakk við sjónvarpsturninn í Kænugarði nú síðdegis. Í kjölfarið rofnuðu útsendingar úkraínskra sjónvarpsstöðva á svæðinu.

Innlendir fréttamiðlar og úkraínska þingið hafa greint frá þessu.

Kemur meðal annars fram að við hlið turnsins sé minnismerki um fjöldamorð í helförinni sem nasistar frömdu á svæðinu 29.-30. september árið 1941.

Borgarstjórinn Vítalí Klitsjkó deilir einnig myndskeiði sem nær sprengingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert