Navalní fundinn sekur um fjárdrátt

Navalní ásamt lögmanni sínum Olgu Mikhailovu í réttarsalnum.
Navalní ásamt lögmanni sínum Olgu Mikhailovu í réttarsalnum. AFP

Rússneskur dómstóll hefur fundið Alexei Navalní, rússneska stjórnarandstæðinginn, sekan um fjárdrátt.

„Navalní sveik út fé,“ sagði dómarinn Margarita Kotova, að sögn blaðamanns AFP-fréttastofunnar á staðnum.

Navalní, sem hefur gagnrýnt Vladimír Pútín Rússlandsforseta harðlega, var fangelsaður á síðasta ári vegna gamalla ásakana um fjársvik eftir að hann lifði af eiturárás sem hann sakar rússnesk stjórnvöld um að hafa staðið á bak við.

Navalní, sem síðast fékk tveggja og hálfs árs fangelsisdóm, þarf því væntanlega að dúsa enn lengur í fangelsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert