Vann þrjá og hálfan milljarð króna

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Heppinn Þjóðverji vann rúmlega þrjá og hálfan milljarð króna í Eurojackpot í kvöld. 

Fjórir unnu annan vinning og fær hver þeirra rúmlega 63 milljónir króna. Voru miðarnir keyptir í Lettlandi, Danmörku og tveir í Noregi. 

Þá hlutu fimm miðahafar þriðja vinning, tæplega 29 milljón króna hver. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Noregi, Póllandi og tveir í Þýskalandi. 

Enginn var með allar Jókertölur réttar í réttri röð. 

Vinningstölur kvöldsins: 7, 8, 35, 37, 49. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert