Þrír fá tæpar fjörtíu milljónir króna

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Fyrsti vinningur upp á tæpa sex milljarða króna gekk ekki út þegar dregið var út í Eurojackpot í kvöld. 

Þrír fá aftur á móti tæpar 40 milljónir króna í sinn hlut í annan vinning. Voru miðarnir seldir í Tékklandi og Noregi. 

Enginn var með allar jókertölur kvöldsins réttar í réttri röð, en einn var með fjórar tölur réttar í réttri röð og fær sá 100 þúsund krónur í sinn hlut. Var miðinn seldur á lotto.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert