John Lee nýr leiðtogi Hong Kong

John Lee fagnar kjörinu í gær ásamt eiginkonu sinni Janet.
John Lee fagnar kjörinu í gær ásamt eiginkonu sinni Janet. AFP

Fyrrverandi yfirmaður öryggismála sem hafði umsjón með baráttunni gegn lýðræðishreyfingu í Hong Kong hefur verið skipaður nýr ríkisstjóri heimastjórnarinnar.

Nefnd skipuð fólki sem er hliðhollt kínverskum stjórnvöldum stóð á bak við skipun Johns Lee, sem er 64 ára, í embættið, en hann var eini frambjóðandinn.

Hann tekur við stjórninni af Carrie Lam. 

Eftir stutta leynilega kosningu í morgun, greiddu 99 prósent nefndarinnar (sem telur 1.416 manns) með skipun hans í embættið á meðan átta greiddu atkvæði gegn því, að sögn embættismanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert