Bandarísk yfirvöld hafa handtekið fanga sem var á flótta og kvenkyns fangavörð sem talinn er hafa hjálpað honum að flýja úr fangelsi í Alabama-ríki.
Þeirra hefur verið leitað síðustu tíu daga.
Talið er að tvíeykið, Casey White og Vicky White, eigi í „sérstöku sambandi“. Þrátt fyrir að bera sama eftirnafn eru þau ekki skyld.
Parið hvarf eftir að Vicky fylgdi Casey í eftirlit hjá geðlækni en sú læknisheimsókn var notuð sem átylla til að flýja. Ekki liggur fyrir hvort þau eigi í ástarsambandi.
Parið var handtekið í Indiana-ríki eftir að lögreglan fékk ábendingu um að þau hefðu sést á hóteli þar. Eftir handtökuna var Vicky flutt á spítala vegna meiðsla.