Bretar og Svíar skrifa undir varnarsamkomulag

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, undirrituðu …
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, undirrituðu samkomulag í Svíþjóð í morgun. AFP

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og sænski kollegi hans, Magdalena Andersson, skrifuðu undir samkomulag í sum­ar­húsi sænska for­sæt­is­ráðherr­ans í Harpsund, rétt utan við Stokk­hólm, þar sem Bretar heita því að styðja Svía ef ráðist verður á þá.

Svíar heita því einnig að styðja Breta ef ráðist verður á þá.

Sví­ar íhuga aðild að NATO. Tek­in verður ákvörðun um aðild­ina þar í landi 15. maí en aðild er talin minnka líkur á því að landið verði mögulegt skotmark Rússa.

„Ef ráðist yrði á Svía og þeir leita til okkar þá munum við veita þeim stuðning,“ sagði Johnson á sameiginlegum blaðamannafundi í Harpsund.

Talið er líklegt að Johnson skrifi undir svipað samkomulag í Helsinki, höfuðborg Finnlands, síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert