Fórnarlamba öfgamannsins minnst

AFP

Íbúar í bandarísku borginni Buffalo héldu á sunnudag minningarathöfn um fórnarlömb skotárásar við matvöruverslun í borginni í gær. Tíu létust í árásinni og þrír slösuðust, en árásarmaðurinn er hvítur hægri-öfgasinni. 

Lögreglustjóri Buffalo, Joesph Gramaglia, sagði á blaðamannafundi að árásarmaðurinn, sem er 18 ára og hefur verið nafngreindur sem Payton S. Gendron, hafi fyrirfram kannað staði þar sem svartir íbúar eru í meirihluta áður en hann keyrði frá heimabæ sínum Conklin sem er 322 kílómetra frá Buffalo. 

Payton S. Gendron.
Payton S. Gendron. AFP

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar hafa greint frá því að Gendron hafi skrifað ít­ar­lega „stefnu­lýs­ingu“ og birt á net­inu skömmu fyr­ir árás­ina. Í meint­um texta seg­ir árás­armaður­inn frá áætl­un sinni sem var knú­in af kynþáttar­for­dóm­um. 

Gendron sagðist meðal ann­ars vera „inn­blás­inn“ af of­beld­is­verk­um hvítra hægri-öfga­sinna, m.a. hryðju­verk­un­um í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019, þar sem 51 múslimi lést. 

AFP

Gendron beitti hálf-sjálf­virku skot­vopni við árás­ina sem hann hafði skrifað á slag­orð hvítra hægri-öfga­sinna. 

Gendron klæddist hvoru tveggja skotheldri brynju og hjálmi þegar hann framdi árásina. Langflest fórnalamba hans voru svört á hörund. 

AFP

Joe Biden Bandaríkjaforseti fordæmdi árásina í Washington í dag og sagði að „við þurfum öll að vinna saman til að takast á við hatrið sem er blettur á sál Bandaríkjanna“.

Íbúar komu saman fyrir utan matvöruverslunina á sunnudagsmorgun og ríkisstjóri New York Kathy Hochul ávarpaði minningarathöfn í kirkju borgarinnar. 

Gendron undirgekkst í dag geðmat, en hann hefur verið ákærður fyrir morð af yfirlögðu ráði án möguleika á tryggingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert