Tíu látnir eftir skotárás í New York

Viðbúnaður lögreglu fyrir utan matvöruverslunina sem um ræðir.
Viðbúnaður lögreglu fyrir utan matvöruverslunina sem um ræðir. AFP

Átján ára vopnaður hvítur karlmaður skaut á laugardag tíu til bana í Buffalo í New York-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn var þjóðernissinnaður-hægri öfgamaður og sýndi frá árásinni beint á samfélagsmiðlum sínum. 

Árásarmaðurinn var klæddur bæði brynju og hjálm og var síðar handtekinn af lögreglu. 

Auk hinna tíu sem létust eru þrír slasaðir. Ellefu fórnalambanna voru svört á hörund. 

Árásarmaðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, skaut fjóra á bílastæði við matvöruverslun, þar af þrjá til bana, áður en hann fór síðan inn í verslunina og hélt skothríðinni áfram. 

Á meðal þeirra sem voru skotnir til bana í versluninni var fyrrverandi lögreglumaður, sem sinnti starfi vopnaðs varðar í matvörubúðinni. Samkvæmt lögreglu skaut vörðurinn nokkrum sinnum á árásarmanninn án árangurs áður en hann var skotinn til bana. 

Fram kom í máli lögreglu á blaðamannafundi í Buffalo á laugardagskvöld að árásarmaðurinn hafi beint byssu sinni að sjálfum sér þegar lögregla kom á vettvang, en lögreglu tókst síðan að tala hann af því og hann gaf sig síðan á vald lögreglu. 

Rannsakað sem hatursglæpur

Stephen Belongia, fulltrúi bandarísku Alríkislögreglunnar á blaðamannafundinum, sagði við fjölmiðla að árásin væri rannsökuð sem hatursglæpur. 

Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að árásarmaðurinn hafi skrifað ítarlega „stefnulýsingu“ og birt á netinu skömmu fyrir árásina. Í meintum texta segir árásarmaðurinn frá áætlun sinni sem var knúin af kynþáttarfordómum. 

Árásarmaðurinn sagðist meðal annars vera „innblásinn“ af ofbeldisverkum hvítra hægri-öfgasinna, m.a. hryðjuverkunum í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019, þar sem 51 múslimi lést. 

Maðurinn beitti hálf-sjálfvirku skotvopni við árásina sem hann hafði skrifað á slagorð hvítra hægri-öfgasinna. 

Fjölmiðlar vestanhafs segja árásarmanninn, Payton Gendron frá bænum Conklin í New York-ríki, hafi verið ákærður fyrir morð af yfirlögðu ráði án möguleika á tryggingu. 

Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu þakkaði Joe Biden Bandaríkjaforseti lögreglu og viðbragðsaðilum fyrir starf sitt. 

„Öll hryðjuverk heima fyrir, þeirra á meðal allt ofbeldi sem framið er í nafni andstyggilegrar hugmyndafræði hvítra þjóðernissinna fer gegn öllu því sem við stöndum fyrir í Bandaríkjunum,“ sagði forsetinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert