Sagði innrásina í Írak „tilefnislausa og grimma“

Í ræðu sem hann hélt í borginni Dallas um stríðið í Úkraínu ruglaðist George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í ríminu og sagði innrásina í Írak hafa verið „tilefnislausa og grimma“.

Hann var fljótur að leiðrétta sjálfan sig og kenndi aldrinum um eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði AFP-fréttastofunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert