Reyna að umkringja úkraínska hermenn

Úkraínskur varnarliði í grennd við Lísisjansk myndaður á mánudag.
Úkraínskur varnarliði í grennd við Lísisjansk myndaður á mánudag. AFP

„Staðan í austri er sérstaklega erfið vegna þess að örlög landsins ráðast mögulega þar í þessum töluðu orðum,“ sagði Oleksandr Morusjanik, talsmaður varnarmálaráðuneytis Úkraínu, við Reuters

Rússneskar hersveitir hafa að undanförnu einbeitt sér sérstaklega að Donbas-svæðinu í suðausturhluta Úkraínu. Nú vinna þær að því að ná á vald sitt héruðunum Dónetsk og Lúhansk sem eru í Donbas en þar halda aðskilnaðarsinnar til.

Þær hafa þegar tekið völdin í þremur bæjum í Dónetsk, þar á meðal í bænum Svitlodarsk, að sögn svæðisstjórans Pavlo Kyrylenko.

Nálgast borgirnar úr þremur ólíkum áttum 

Þá stefna hersveitirnar sömuleiðis á að umkringja úkraínska hermenn í nágrannaborgunum Sievierodónetsk og Lísisjansk sem liggja sitt hvoru megin við Dónets-ána. Hersveitirnar nálgast borgirnar nú úr þremur ólíkum áttum. 

Motusjanik segir að rússneskar hersveitir hafi ekki gefist upp á því að reyna að komast yfir ána.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert