Handjárnuðu foreldra á meðan árásamaðurinn gekk laus

19 börn og tveir kennarar létust í árásinni.
19 börn og tveir kennarar létust í árásinni. AFP

Lögreglan í Texas hefur endurskoðað lykilatriði um skotárásina á barna­skóla í Uvalde á þriðju­dag. Lög­reglu­yf­ir­völd hafa verið gagn­rýnd fyr­ir að bregðast ekki við árás­inni nógu skjótt. 

BBC greinir frá því að árásarmaðurinn hafi verið á skólalóðinni í tólf mínútur óáreittur áður en hann fór inn í skólann og skaut 19 börn og tvo kennara til bana. 

Áður greindi lögregla frá því að lögreglumaður á svæðinu hefði skotið á árásarmanninn áður en hann fór inn. 

Myndskeið af viðbrögðum lögreglu fyrir utan skólann hafa birst á samfélagsmiðlum en þar sjást foreldrar grátbiðja lögreglumennina að fara inn í skólann. Sumir foreldranna voru handjárnaðir á meðan árásarmaðurinn var enn inni í skólanum. 

Vitni segja að lögreglan hafi verið hikandi við að yfirbuga árásarmanninn. 

Angeli Rose Gomez sagði í viðtali við Wall Street Journal að hún hafi séð lögreglu henda einum föður á jörðina, piparúði var notaður á annan og rafbyssa var notuð á þann þriðja. 

„Lögreglan gerði ekkert,“ sagði Gomez sem var handjárnuð í stutta stund er árásin átti sér stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert