Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa náð tökum á mikilli útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi.
Sérfræðingar efast þó um opinberar tölur ríkisins séu réttar, þar sem að heilbrigðiskerfi Norður-Kóreu er eitt það versta í heiminum. Líklegt þykir að bóluefni gegn veirunni sé ekki til í ríkinu og þá hafi yfirvöld ekki getu til að skima mikinn fjölda íbúa.
Ríkisfjölmiðill Norður Kóreu (KCNA) greinir frá því að „framförum“ hafi verið náð í að greina fólk og í meðferð veikra.
Ríkið greindi frá fyrsta tilfelli Covid-19 12. maí. Kim Jong Un, leiðtogi ríkisins, kenndi lötum embættismönnum um treg viðbrögð við faraldrinum og sendi hermenn til að standa vörð um apótek í höfuðborginni Pyongyang.
Að sögn KCNA greindust 100 þúsund ný tilfelli af „kvefinu“ í gær en mest hafa greinst um 390 þúsund á einum degi í ríkinu.
69 Norður-Kóreumenn hafa látist af völdum Covid-19 að sögn fjölmiðilsins.
25 milljónir búa í ríkinu og hefur enginn verið bólusettur, þar sem yfirvöld höfnuðu boði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að fá afhent bóluefni.