Læknar skuli skrá alla ófríska ríkissborgara

Mótmæli frá árinu 2020 er niðurstöður æðsta dómstóls Póllands voru …
Mótmæli frá árinu 2020 er niðurstöður æðsta dómstóls Póllands voru kynntar. AFP

Stjórnarandstaða Póllands hefur gagnrýnt ákvörðun ríkisstjórnarinnar að læknar skuli halda skrá yfir allar ófríska ríkisborgara. Telur stjórnarandstaðan skrána vera „nýtt tól í kúgun kvenna“.

Stjórn Póllands hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir stefnu þeirra er kemur að þungunarrofi. 

Æðsti dóm­stóll Pól­lands komst að þeirri niður­stöðu árið 2020 að þung­un­ar­rof sem eru fram­kvæmd vegna þess að fóst­ur er með al­var­leg­an og óaft­ur­kræf­an fæðing­argalla væri brot á stjórn­ar­skrá lands­ins. Þung­un­ar­rof er aðeins heim­ilt í þeim til­vik­um þegar líf móður­inn er í hættu eða ef þung­un­in er af­leiðing nauðgun­ar eða sifja­spells.

Adam Niedzielski, heilbrigðisráðherra Póllands, hefur nú gefið út tilskipun þess efnis að allar meðgöngur skuli skrá, ásamt núverandi eða fyrrverandi veikindum, læknisheimsóknir, meðferðir og blóðflokk fólks. 

Heilbrigðisráðuneytið sagði að slíkar upplýsingar myndu hjálpa læknum í Póllandi eða erlendis til að aðstoða sjúklinga sína. 

Þingmenn stjórnarandstöðunnar telja hins vegar að upplýsingarnar gætu komist í hendur saksóknara sem studdir eru af stjórninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert