Macron afþakkar boð um afsögn

Forseti Frakklands Emmanuel Macron, afþakkar boð Elisabeth Borne forsætisráðherra Frakklands …
Forseti Frakklands Emmanuel Macron, afþakkar boð Elisabeth Borne forsætisráðherra Frakklands um afsögn. AFP

Forsætisráðherra Frakklands Elisabeth Borne bauð Emmanuel Macron forseta Frakklands að hún myndi segja af sér eftir að meirihluti Ensemble, þriggja flokka mið-hægribandalag Macron, féll í þingkosningum í Frakklandi á sunnudaginn.

Macron afþakkaði þetta boð Borne og mun hún því áfram gegna embætti forsætisráðherra. Macron leitar nú allra lausna til að mynda nýjan meirihluta með því að semja við aðra hægriflokka að sögn talsmanns forsetans.

Flokk­ur Macrons, En­semble, fékk mest fylgi í kosn­ing­un­um en hann vant­ar samt sem áður tugi þing­sæta til þess að halda meiri­hluta á þingi. Þann meiri­hluta hef­ur flokk­ur­inn átt síðustu fimm ár.

Forsætisráðherra Frakklands Elisabeth Borne.
Forsætisráðherra Frakklands Elisabeth Borne. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert