Gráu bætt ofan á svart í Afganistan

Rauði krossinn og rauði hálfmáninn eru mættir á svæðið í Afganistan þar sem að minnsta kosti þúsund manns létust í nótt vegna jarðskjálfta en talan hækkar með hverjum tímanum sem líður.

Skjálftinn sem reið yfir var 6,1 að stærð og er með þeim mannskæðustu í sögunni. Afganski Rauði hálfmáninn með stuðningi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) er nú þegar á staðnum og starfsfólk og sjálfboðaliðar frá nálægum deildum sinnir þar neyðarstarfi.

Afganski Rauði hálfmáninn starfrækir deildir í öllum 34 héruðum Afganistan og er með fleiri en 30.000 sjálfboðaliða úr röðum heimafólks sem sinnir ýmsu sjálfboða starfi. Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi, segir þetta sýna fram á mikilvægi þess að hafa fólk til staðar sem geti brugðist strax við.

Grátt bætist ofan á svart

Hægt er að segja að gráu sé bætt ofan á svart í Afganistan en jarðskjálftinn bætist ofan á aðrar hörmungar þar í landi. Meira en 50% Afgana eru í mikilli þörf fyrir mannúðaraðstoð vegna ýmissa hamfara eins og átaka, þurrka og annarra öfga í veðri tengdum hlýnun jarðar, gríðarlegra efnahagserfiðleika, laskaðs heilbrigðiskerfis og lélegra innviða. 

Þá má einnig nefna að jafnrétti og önnur mannréttindi í landinu hafa sjaldan staðið jafn höllum fæti eftir að Talíbanar náðu völdum þar. 

Biðlar Brynhildur til fólks að leggja sitt að mörkum í formi styrkja til Rauða krossins.

Yfir þúsund manns eru látnir eftir jarðskjálfta í Afganistan og …
Yfir þúsund manns eru látnir eftir jarðskjálfta í Afganistan og enn fleiri slasaðir. AFP
Mörg hús eru illa leikin eftir jarðskjálftan.
Mörg hús eru illa leikin eftir jarðskjálftan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert