Regnbogafánar og rósir á lofti

Ungt fólk er í meirihluta þeirra sem safnast hafa saman …
Ungt fólk er í meirihluta þeirra sem safnast hafa saman í miðborg Ósló. mbl.is/Sigurður Bogi

Mikill fjöldi fólks er samankominn í miðborg Ósló þar sem skotárás var framin í nótt með þeim afleiðingum að tveir létust og um tuttugu særðust. Norska lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverk og segir árásarmanninn hafa tengsl við íslömsk öfgasamtök.

Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður Morgunblaðsins og mbl.is, er staddur í Ósló og segir þúsundir vera á gangi með regnbogafána og rósir á lofti. Aðallega sé um ungt fólk að ræða ungt fólk. Tónlistin ómi og í raun sé verið að ganga einhvers konar gleðigöngu í stað þeirrar sem var aflýst.

Hann segir lögregluna með mikinn viðbúnað á svæðinu og götum lokað víða.

mbl.is/Sigurður Bogi

Gleðigöngunni, Oslo Pride, sem átti að fara fram í Ósló í dag var aflýst vegna árásarinnar. Skipuleggjendur göngunnar segja það hafa verið gert að tilmælum lögreglu. Þá var öllum viðburðum tengdum göngunni einnig aflýst.

Ef marka má færslur á Twitter virðast margir ánægðir með að fólk hafi safnast saman þrátt fyrir að formlegu göngunni hafi verið aflýst. Það sýni að ástin sigri að lokum. Gangan hafi verið mikilvæg sem aldrei fyrr.




mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert