Fjórir látnir og hundruð slösuð eftir nautaat

Í myndskeiðinu má sjá hvernig stúkan hrinur.
Í myndskeiðinu má sjá hvernig stúkan hrinur. Skáskot

Að minnsta kosti fjórir eru látnir og hundruð eru slösuð í Kólumbíu eftir að stúka, full af áhorfendum sem fylgdust með nautaati, féll. BBC greinir frá.

Um er að ræða viðburðinn „Corraleja“, hefðbundinn kólumbískan viðburð þar sem fólk er vanalega hvatt til að taka þátt í að espa nautin upp.

Í myndskeiði af samfélagsmiðlum má sjá hvernig stúkan hrynur og fólk taka til fótanna í skelfingu.


 

Óttast er að tala látinna muni hækka.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert