Innrásin „fullkomið dæmi um eitraða karlmennsku“

Johnson hefur aldrei verið þekktur fyrir að sitja á skoðunum …
Johnson hefur aldrei verið þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum. AFP

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði ekki ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona. Þetta fullyrðir Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. 

„Ef Pútín væri kona –sem hann er augljóslega ekki – en ef hann væri það, þá held ég að hann hefði aldrei farið í þessar brjáluðu karlrembuárásir og ofbeldisfulla stríð á þann hátt sem raun ber vitni um,“ sagði Johnson við þýsku útvarpsstöðina ZDF í gærkvöldi.

Þá sagði hann innrásina „fullkomið dæmi um eitraða karlmennsku.“ 

Johnson kallaði jafnframt eftir betri menntun fyrir stúlkur um allan heim og því að fleiri konur myndu setjast í valdastóla. 

Breski forsætisráðherrann sagði að auðvitað vonaðist fólk til þess að stríðinu færi að ljúka en að endir þess væri ekki í augsýn. „Pútín er ekki að bjóða fram frið.“

Þá sagði Johnson jafnframt að vestrænir bandamenn Úkraínu yrðu að styðja við landið til þess að það gæti verið í bestu mögulegu stöðu til þess að friðarviðræður við rússnesk stjórnvöld verði mögulegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert