Rússneski kvikmyndaleikstjórinn Kirill Serebrennikov, sem yfirgaf heimalandið eftir að hafa gagnrýnt stjórnvöld vegna stríðsins í Úkraínu, hefur sakað yfirvöld um að hafa „myrt“ fyrrum leikhús hans sem hann hafði byggt upp sem úrvals menningarvettvang.
Á miðvikudagskvöld tilkynntu yfirvöld í Rýsslandi um leiðtogaskipti í nokkrum af helstu leikhúsum höfuðborgarinnar Moskvu, þar á meðal í Gogol miðstöðinni og Soveremennik.
Þá sögðu yfirvöld að Gogol miðstöðin myndi aftur fá sitt gamla nafn: Nikolai Gogol leikhúsið.
Á árunum 2012 til 2021 var Serebrennikov listrænn stjórnandi Gogol miðstöðvarinnar, sem hann gerði að alþjóðlegum menningarvettvangi.
„Já. Gogol miðstöðinni hefur verið lokað. Þannig er það,“ skrifaði Serebrennikov á skilaboðaforritinu Telegram.
„Frá sjónarhóli listarinnar er þetta ekki bara skemmdarverk – þetta er morð.“
Hann sagði að síðasta leikverk Gogol miðstöðvarinnar verði leikrit sem heitir „Ég tek ekki þátt í stríði“.