Vill stóran hluta Úkraínu og löngu stríði spáð

Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti. AFP/SPUTNIK

Vladimír Pútín Rússlandsforseti vill enn ná meirihluta landsvæðis Úkraínu, að sögn bandarísku leyniþjónustunnar. 

Rússneskar hersveitir eru aftur á móti svo veikburða að bandarísk stjórnvöld meta það sem svo að þær séu einungis færar um mjög rólega landvinninga. 

Það þýðir að stríðið gæti varað í langan tíma, að sögn Avrilar Haines, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar. 

Ólíklegt að hann nái markmiðinu fljótlega

Í mars einbeittu rússneskar hersveitir sér að því að nýju að hertaka Donbas-svæðið eftir að þeim hafði mistekist að ná Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, og fleiri borgum á sitt vald. 

Haines segir markmið Pútíns enn þau sömu og í upphafi átakanna: Að leggja undir sig sem stærstan hluta Úkraínu. 

Hún segir þó ólíklegt að hann nái því markmiði sínu í bráð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert