Að minnsta kosti þrír særðir

Að minnsta kosti þrír eru særðir.
Að minnsta kosti þrír eru særðir. Olafur Steinar Gestsson / Ritzau Scanpix / AFP

Ríkisspítalinn í Kaupmannahöfn hefur upplýst DR fréttamiðilinn um að þrír einstaklingar séu nú til meðhöndlunar á sjúkrahúsinu í tengslum við skotárásina í Field's. Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar eftir rúman hálftíma.

Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina en lögregla er enn á vettvangi.

Lars Ole Karlsen aðstoðarlögreglustjóri sagði að enn væri að tryggja öryggi á svæðinu.

Lögregla biður þá sem eru enn í verslunarmiðstöðinni að bíða eftir lögreglu. Þá eru þeir sem eru á svæðinu beðnir um að láta aðstandendur vita af sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert