Sex létust í snjóflóði í Ölpunum

Jökulinn á Marmolada fjalli.
Jökulinn á Marmolada fjalli. AFP

Sex létust og að minnsta kosti átta slösuðust í snjóflóði sem féll frá stærsta jökli ítölsku Alpana.

Jökullinn hrundi saman á fjallinu Marmolada, sem er hæsta fjall Dólómítafjallanna. Í gær voru 10 stig á toppi fjallsins, sem er hæsta hitastig sem hefur mælst þar. 

Michela Canova, talskona viðbragðsaðila, gat ekki staðfest hvaðan hinir látnu eru. 

„Snjóflóð sem samanstóð af snjó, ís og grjóti féll á gönguleið þegar nokkrir aðilar voru fastir í reipi, sumir sópuðust í burtu,“ sagði hún í viðtali við AFP-fréttaveituna og bætti við að óvíst er hversu margir voru í gönguhópnum.

Sex létust í snjóflóðinu.
Sex létust í snjóflóðinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert