Fjöldahjálparmiðstöð opin í dag

Fólk yfirgefur verslunarmiðstöðina í gær.
Fólk yfirgefur verslunarmiðstöðina í gær. AFP/Ólafur STEINAR GESTSSON / Ritzau Scanpix

Fjöldahjálparmiðstöð verður opnuð á nýjan leik í Amager í Kaupmannahöfn klukkan 12 á hádegi að dönskum tíma eða klukkan 10 að íslenskum tíma.

Þar geta vitni að skotárásinni í verslunarmiðstöðinni Field´s  í gær, eða aðrir,  fengið sálræna aðstoð.

Lögreglan í Kaupmannahöfn greinir frá þessu á Twitter.

Miðstöðinni var lokað klukkan 3 í nótt að íslenskum tíma eftir að hafa verið opnuð í kjölfar árásarinnar, þar sem þrír voru skotnir til bana. Fjórir til viðbótar særðust alvarlega.

Fólki er einnig bent á að hringja í hjálparsíma Rauða krossins í Danmörku eða í svokallaðan barnasíma fyrir börn og ungt fólk ef það vill tala við einhvern um það sem gerðist.

AFP/Ólafur STEINAR GESTSSON / Ritzau Scanpix / AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert