Hitabylgja í Evrópu „háalvarlegt mál“

Mynd tekin fimmta júlí sem sýnir uppþornaðan árfarveg Po árinnar …
Mynd tekin fimmta júlí sem sýnir uppþornaðan árfarveg Po árinnar í norðurhluta Ítalíu. AFP/Andrea Pattaro

„Þetta er methiti, tíu stig í Ölpunum. Þetta er bara hrikalegt á þessu slóðum,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. 

„Mér skilst að þetta sé nokkuð óvenjulegt. Á Ítalíu eru miklir þurrkar og engisprettufaraldur í kjölfarið. Áin Pó var komin niður í 20% af því sem hún er venjulega. Þetta er háalvarlegt mál, vatnsskortur og langvarandi þurrkar,“ segir Þorsteinn. 

Hitabylgjur í Evrópu nái sjaldnast til Íslands

Hitabylgjan sem geisar nú í vesturhluta Evrópu hefur eflaust hvergi valdið meiri vandræðum en á Ítalíu. Snjóflóð varð að minnsta kosti sjö að bana en þverr­andi lík­ur eru taldar á því að nokkur af þeim 14 manns sem er saknað finnist á lífi. Stjórnvöld þar í landi hafa lýst yfir neyðarástandi í fimm héruðum vegna þurrka. 

„Það koma vissulega svona tímabil með miklum hita og þurrkum í Evrópu en það nær sjaldan til okkar. Það er litlar breytingar að sjá á næstunni í Evrópu en gæti aðeins kólnað á Íslandi,“ segir Þorsteinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert