Hættir sem leiðtogi Íhaldsflokksins í dag

Boris Johnson.
Boris Johnson. AFP

Boris Johnson mun segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins í dag en halda áfram sem forsætisráðherra Bretlands til haustsins. BBC greinir frá þessu.

Kosningabarátta vegna nýs leiðtoga Íhaldsflokksins fer fram í sumar og nýr forsætisráðherra verður klár áður en þing Íhaldsflokksins fer fram í október.

Johnson mun gefa út yfirlýsingu síðar í dag, að sögn talsmanns ríkisstjórnarinnar.

Átta ráðherr­ar í bresku rík­is­stjórn­inni hafa sagt af sér embætti það sem af er morgni, eða þau Brandon Lew­is, ráðherra mál­efna Norður-Írlands, Geor­ge Freem­an vís­inda­málaráðherra, Damien Hinds ör­ygg­is­málaráðherra, Helen Whately og Guy Opp­er­manog Chris Philp, James Cartlidge og Michelle Do­nel­an.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert