Stjórnarformaður Twitter hefur tilkynnt að fyrirtækið muni lögsækja Elon Musk til að framfylgja 44 milljarða dala samningi um kaup á fyrirtækinu, sem Musk hefur ákveðið að hætta við.
„Stjórn Twitter er staðráðin í að loka viðskiptunum með því verði og skilmálum sem samið var um við Musk og ætlar að fara í mál til að framfylgja samrunasamningnum. Við erum fullviss um að við munum sigra,“ tísti Bret Taylor.
Musk á yfir höfði sér riftunargjald upp á einn milljarð bandaríkjadala fyrir að hætta við kaupin.