Tæplega 400 lögreglumenn komu á vettvang

Fyrir utan Robb-grunnskólann í Uvalde í Texas, 30. júní.
Fyrir utan Robb-grunnskólann í Uvalde í Texas, 30. júní. AFP/Chandan Khanna

Tæplega 400 lögreglumenn komu á vettvang þegar fjöldaskotárásin í Robb-grunnskólanum í Uvalde í Texas átti sér stað.

Þetta kemur fram í skýrslu frá rannsakendum árásarinnar, sem gefin var út í dag. AP-fréttastofan greinir frá.

„Í Robb-grunnskólanum tókst viðbragðsaðilum ekki að fylgja eftir virkri skotþjálfun sinni og þeim tókst ekki að forgangsraða björgun saklausra lífa fram yfir eigin öryggi.“

Hleypt af 100 skotum áður en nokkur lögreglumaður kom inn

Segir í skýrslunni að verkferlar hafi brugðist og skapað óreiðukennda atburðarás sem stóð yfir í meira en klukkustund áður en árásarmaðurinn, sem skaut 19 nemendur og tvo kennara til bana, náðist og var skotinn.

Byssumaðurinn hleypti af um það bil 142 skotum inni í byggingunni og það er „nánast öruggt“ að 100 skotum hafi verið hleypt af áður en nokkur lögreglumaður kom inn.

Samkvæmt skýrslunni voru 376 lögreglumenn á vettvangi. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra var frá alríkislögreglunni og ríkislögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert