Joe Biden aftur með „vægan hósta“

Joe Biden Bandaríkjaforseti.
Joe Biden Bandaríkjaforseti. AFP

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur fengið að minnsta kosti eitt einkenni kórónuveirunnar á ný sem læknir Hvíta hússins lýsir sem „vægum hósta“.

Biden fékk jákvæða niðurstöðu í kórónuveiruprófi í dag og er enn í einangrun, en hann greindist með veiruna á laugardaginn eftir að hafa fengið neikvæðar niðurstöður fjóra daga í röð.

Að sögn Kevins O‘Connor, læknis Hvíta hússins, líður forsetanum að öðru leyti vel og er hitalaus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert