Tveir stungnir til bana í Otta í Noregi

Lögregla kom á vettvang klukkan sex í gærkvöldi og sinnti …
Lögregla kom á vettvang klukkan sex í gærkvöldi og sinnti rannsókn í gegnum nóttina. Mynd úr safni. Ljósmynd/Vegfarandi/Peder Gjersøe

Tveir voru myrtir í bænum Otta í Guðbrandsdal í Noregi í gær en rannsókn lögreglu þar stendur nú yfir. Fólkið var stungið til bana á heimili rétt utan við miðbæ bæjarins. Árásarmaðurinn kallaði sjálfur eftir aðstoð lögreglu.

Norska ríkisútvarpið greinir frá þessu.

Kripos, rannsóknardeild lögreglunnar í Noregi kom á vettvang í gærkvöldi og stóð rannsókn þeirra og lögreglunnar á svæðinu yfir í alla nótt.

Hinn grunaði sem að tilkynnti morðið er nú í haldi lögreglu. Hann hringdi í neyðarlínuna klukkan sex að staðartíma í gær og sagðist hafa stungið tvær manneskjur til bana.

Kristian Bjaanes, aðgerðarstjóri lögreglu í Otta, sagði í samtali við NRK að þegar að lögregla mætti á staðinn stuttu eftir símtalið hafi þau komið að tveim manneskjum þar sem þau lágu í blóði sínu. Maðurinn var þá handtekinn á staðnum án erfiða eða mótmæla. 

Lögmaður hins grunaða sagði við NRK að líðan mannsins hafi ekki verið góð þegar að hann hitti skjólstæðing sinn í gær. Lögmaðurinn sagðist ekki vita hvað vakti fyrir manninum þegar hann framdi verknaðinn. Hann bætti við að geðheilbrigði mannsins væri sérstakt álitamál sem þyrfti að skoða fyrir dómstólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert