Kom árásarmanninum á óvart að Rushdie lifði af

Salman Rushdie er illa haldinn en talinn á batavegi eftir …
Salman Rushdie er illa haldinn en talinn á batavegi eftir að hann var ítrekað stunginn á föstudaginn. AFP/Joel Saget

Það kom árásarmanni Salman Rushdie, Hadi Mat­ar, á óvart að Rushdie hefði lifað árásina af. Frá þessu segir Matar í viðtali við New York Post

Líkt og áður hefur verið greint frá var Rus­hdie ít­rekað stung­inn, þar á meðal í háls­inn, er hann var að und­ir­búa fyr­ir­lest­ur í Chautauqua-stofn­un­inni í New York í Banda­ríkj­un­um á föstu­dag. 

mbl.is/frettir/erlent/2022/08/14/rushdie_ur_ondunarvel_og_getur_tjad_sig/

Hadi Mat­ar sem er 24 ára er í haldi lög­reglu en hann hef­ur neitað sök í mál­inu. 

„Þegar ég heyrði að hann hefði lifað af, ætli það hafi ekki komið mér á óvart,“ sagði Matar í viðtalinu. New York Post tóku viðtal við hann í gegnum fjarfundarbúnað úr fangelsinu.

Las nokkrar blaðsíður af bókinni

Matar sagði ekki til um það hvort árásin hefði verið innblásin af því þegar Ayatollah Ruhollah Khomeini, þáverandi erkiklerk­ur Írans, lýsti yfir dauðadómi á hend­ur rithöfundinum fyr­ir bók­ina Söngva Satans árið 1989. Matar segist hafa „lesið nokkrar blaðsíður“ af bókinni.

„Ég ber virðingu fyrir Ayatollah. Mér finnst hann frábært manneskja. Það er það eins sem ég vil segja um það,“ svaraði hann þegar gengið var á hann um tenginguna við erkiklerkinn fyrrverandi. 

Matar margendurtók í viðtalinu að hann teldi Rushdie ekki vera góða manneskju og að honum líkaði ekki við hann. 

„Hann réðst á Íslam, hann réðst á trú okkar, trúarbrögðin,“ hélt hann áfram. 

Matar kvaðst ekki vera í neinu sambandi við Byltingarher Írans. Hann sagðist hafa frétt af því að Rushdie myndi vera með fyrirlestur þennan örlagaríka dag á Twitter fyrir nokkru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert