Tugir látnir eftir tvö slys í kjölfar slysa

Frá Istanbúl við Sæviðarsund, fjölmennustu borg Tyrklands.
Frá Istanbúl við Sæviðarsund, fjölmennustu borg Tyrklands. AFP

Að minnsta kosti 32 eru látnir eftir tvö umferðarslys í Tyrklandi í dag. Bæði slysin áttu sér stað þar sem árekstrar höfðu þegar orðið fyrr um daginn, að því er fjölmiðlar í landinu herma.

Árekstur rútu og sjúkrabíls varð 16 að bana og slasaði að minnsta kosti 21 til viðbótar, á hraðbraut í Gaziantep-héraðinu.

Fréttastofan DHA segir í umfjöllun sinni að farþegarúta hafi keyrt inn í sjúkrabíl, slökkviliðsbíl og aðra bifreið þar sem innanborðs voru blaðamenn, á vettvangi slyss sem þegar hafði orðið.

Fjórir sjúkraliðar, þrír slökkviliðsmenn og tveir blaðamenn fréttastofunnar Ilhas voru á meðal þeirra sem létust í slysinu.

Hemlarnir gáfu sig

Yfirvöld rannsaka einnig annað banvænt slys sem varð í dag, sem einnig átti sér stað á vettvangi annars áreksturs.

Að minnsta kosti 16 eru látnir og nærri 30 slasaðir eftir að vörubílstjóri keyrði á vegfarendur í bæ um 200 kílómetra austur af hinu slysinu.

Tyrkneski heilbrigðisráðherrann segir hemla vörubílsins hafa gefið sig og hann í kjölfarið keyrt inn í mannþröng. Átta munu vera alvarlega slasaðir.

Fréttastofan Anadolu segir þrjár bifreiðar hafa rekist saman á sama stað skömmu áður. Viðbragðsaðilar voru því þegar á vettvangi þegar slysið varð.

Myndskeið á samfélagsmiðlum hafa sýnt hvernig fjöldi fólks verður fyrir vörubílnum eftir að bílstjórinn missir stjórn á honum.

Varað er við myndefninu hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert