Segir 15 látna eftir árás Rússa

Miðborg Varsjár við fjölmenn mótmæli Pólverja í dag.
Miðborg Varsjár við fjölmenn mótmæli Pólverja í dag. AFP/Janesk Skarzynski

Að minnsta kosti 15 liggja í valnum og tugir eru sárir eftir flugskeytaárás Rússa á lestarstöð í bænum Tsjaplin sem er um 150 kílómetra vestur af Donetsk í Austur-Úkraínu.

Frá þessu greindi Volodimír Selenskí Úkraínuforseti í dag og kvað lest hafa orðið fyrir flugskeytum, hafi fjórir vagnar hennar staðið í ljósum logum. Árásin er gerð á þjóðhátíðardegi Úkraínu en hann er til marks um að þennan dag árið 1991 öðlaðist landið sjálfstæði við fall Sovétríkjanna.

Forsetinn varaði sérstaklega við „andstyggilegum ögrunum Rússa“ í gær í tengslum við þjóðhátíðina og dirfðust sumir ekki að taka þátt í hátíðarhöldum í dag, svo sem í höfuðborginni Kænugarði.

Pólverjar mótmæla framferði Rússa í miðborg Varsjár í dag þar …
Pólverjar mótmæla framferði Rússa í miðborg Varsjár í dag þar sem margt var um manninn. Selenskí Úkraínuforseti ávarpaði samkomuna. AFP/Janek Skarzynski

Ný þjóð 24. febrúar

Selenskí ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um fjarfundabúnað í dag og greindi þar frá flugskeytaárásinni. Fyrr í dag hafði hann í ávarpi til þjóðar sinnar sagt Úkraínu hafa endurfæðst þegar Rússar réðust til atlögu í febrúar og lýsti því yfir að á efsta degi rækju Úkraínumenn Rússa af höndum sér.

„Ný þjóð birtist heimsbyggðinni klukkan fjögur að morgni 24. febrúar. Hún fæddist ekki heldur endurfæddist. Þjóð sem felldi ekki tár, öskraði ekki og varð ekki felmt við. Hún lagði ekki á flótta. Lét ekki deigan síga. Og gleymdi ekki,“ sagði forsetinn þar sem hann stóð í sínum vanabundnu herflíkum við sjálfstæðisminnismerkið í Kænugarði.

Í borginni Karkív ríkti útgöngubann af ótta við að sprengjuregnið herti þar enn vegna þjóðhátíðardagsins en borgin hefur orðið illa úti í ítrekuðum árásum síðustu mánuði.

Reuters
BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert