Segjast hafa endurheimt 500 ferkílómetra

Úkraínskir skriðdrekar.
Úkraínskir skriðdrekar. AFP

Úkraínumenn segjast hafa endurheimt 500 ferkílómetra svæði í héraðinu Kerson í suðurhluta Úkraínu.

Herinn var í stórsókn um helgina og náði til baka fjölda svæða sem Rússar höfðu hernumið.

„Við höfum frelsað um 500 ferkílómetra,“ sagði Natalía Gumenyuk, talsmaður úkraínska hersins í suðri.

Hún bætti við að byggðir í Vysokopillia, Biloguirka, Soukhy Stavok og Myrolioubivka væru allar „undir úkraínskri stjórn“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert