Yfirvofandi matvælakreppa í Pakistan

Matvælaverð í Pakistan hefur hækkað gríðarlega og matvælakreppa yfirvofandi í …
Matvælaverð í Pakistan hefur hækkað gríðarlega og matvælakreppa yfirvofandi í landinu. AFP

Margar milljónir manna eða um þriðjungur landsmanna í Pakistan glíma nú við versu flóð í áratug. Flóðin hafa haft gríðarlegar afleiðingar og vara ráðherrar í Pakistan við yfirvofandi matvælakreppu þar sem næstum helmingur uppskeru landsins skolaði í burt í flóðunum. 

Matvælaverð í Pakistan stendur nú í 74 ára hámarki og hefur hækkað um 30% til viðbótar eftir flóðin. Til marks um hækkanir á matvælaverði hefur grænmetisverð hækkað um 500%.

Pakistan reiðir sig á alþjóðlega aðstoð

Útflutningstekjur Pakistan eru að mestu byggðar á útflutningi á bómul og hveiti. Líkur eru á því að uppskerubrestur í kjölfar flóðanna geti haft í för með sér að landsmenn þurfi að reiða sig á innflutning landbúnaðarvara og alþjóðlega aðstoð.

Neyðin er mikil í Pakistan og stendur fólk hér í …
Neyðin er mikil í Pakistan og stendur fólk hér í röð eftir matvælaúthlutun. AFP

Íslensk stjórnvöld hafa strax látið að sér kveða til þess að bregðast við neyðarástandinu sem nú ríkir í Sómalíu og Pakistan. Viðbótarfjármagni hefur verið varið í matvælaátælun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).

Möguleiki á enn frekari hækkunum hrávöruverðs

Pakistan er fimmti stærsti bómullarframleiðandi heimsins og sér um 5% af eftirspurn heimsins. Áætlað er að um helmingur bómullaruppskeru landsins hafi skolast burt vegna flóðsins og er því ljóst að flóðin munu hafa áhrif á framboð bómullar í heiminum.

Pakistan er fimmti stærsti bómullarframleiðandi heims.
Pakistan er fimmti stærsti bómullarframleiðandi heims. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert