Fjöldagröf fannst í Isíum

Gröf 412 má sjá á myndinni.
Gröf 412 má sjá á myndinni. Ljósmynd/Telegram

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, tilkynnti rétt í þessu að fjöldagröf hafi fundist við Isíum. Úkraínuher frelsaði borgina undan valdi Rússa í leiftursókn sinni síðustu daga.

„Við viljum að heimurinn viti hvað rússneskt hernám hefur valdið,“ sagði Selenskí.

Að minnsta kosti 440 grafir hafa verið fundnar í skóginum við Isíum. Sergey Botvinov, lögregluþjónn í Isíum, sagði í viðtali við Sky að fórnarlömbin hafi látist í sprengjuárásum og skotárásum Rússa. 

Gröf 445 sést á myndinni.
Gröf 445 sést á myndinni. Ljósmynd/Telegram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert