Tveir lögreglumenn stungnir í London

Mikil öryggisgæsla er í miðborg London um þessar mundir vegna …
Mikil öryggisgæsla er í miðborg London um þessar mundir vegna fjölda fólks sem hefur safnast þar saman vegna andláts Elísabetar II. Bretadrottningar. AFP/Stephane de Sakutin

Tveir lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa verið stungnir með hníf í miðbæ London, höfuðborgar Englands, um klukkan sex í morgun að staðartíma. Ekki er talið að atvikið tengist hryðjuverkum og er lögreglan ekki að rannsaka það sem slíkt.

Mikil öryggisgæsla er í miðborginni um þessar mundir þar sem fjöldi fólks hefur safnast saman vegna andláts Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Margt fólk stendur í löngum röðum og bíður þess að geta vottað drottningunni heitinni virðingu sína.

Þá eru margir þjóðarleiðtogar víðs vegar úr heiminum væntanlegir til London á næstu dögum vegna útfarar drottningarinnar.

Skammt frá kistu drottningarinnar

Maðurinn sem liggur undir grun var skotinn með rafbyssu og handtekinn, og er hann nú einnig á spítala. 

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni átti atvikið sér stað við Leicester-torg, ekki langt frá staðnum þar sem kista drottningarinnar liggur, og er sá grunaði karlmaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert