Fyrrverandi forsetar Panama ákærðir

Mótmæli gegn háu matar- og bensínverði í Panamaborg í sumar.
Mótmæli gegn háu matar- og bensínverði í Panamaborg í sumar. AFP/Rogelio Figueroa

Saksóknarar í Panama hafa ákært forsetana fyrrverandi Richardo Martinelli og Juan Carlos Valera fyrir að þvætta peninga frá verktakafyrirtækinu Odebrecht. Áður hafði fyrirtækið viðurkennt að hafa greitt mútur í landinu.

Mennirnir tveir, sem leiddu Panama á árunum 2009 til 2019, mættu ekki í dómsal í gær vegna málsins.

Saksóknarar saka þá um að hafa notað leppfyrirtæki og erlenda bankareikninga til að taka á móti peningum frá Odebrecht á árunum 2008 til 2014.

Um 50 manns í viðbót tengjast ákærunum, þar á meðal þó nokkrir fyrrverandi ráðherrar, að sögn saksóknara.

Odebrecht játaði árið 2016 í dómsal í Brooklyn í Bandaríkjunum að hafa greitt yfir 788 milljónir dala, eða um 110 milljarða króna, í mútur til embættismanna í ríkisstjórnum og stjórnmálaflokkum, aðallega í Suður-Ameríku, til að tryggja sér verktakasamninga.

Brasilíska fyrirtækið viðurkenndi að hafa greitt 59 milljónir dala, eða um 8,2 milljarða króna, í mútur í Panama gegn því að fá slíka samninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert