Gasleki frá Nord Stream 2-gasleiðslunni

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, stendur við túrbínu Nord Stream 1.
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, stendur við túrbínu Nord Stream 1. AFP/Sascha Schuermann

Danska siglingamálastofnunin tilkynnti í dag „hættulegan“ gasleka í Eystrasalti nálægt Nord Stream 2-gasleiðslunni óvirku en tilkynnt hefur verið um óútskýrða minnkun á þrýstingi í leiðslunni.

Gaslekinn, sem er suðaustan við dönsku eyjuna Borgundarhólm, „er hættulegur fyrir sjóumferð“ og óheimilt er að sigla í  fimm sjómílna radíus frá svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá dönsku siglingamálastofnuninni.

Gasleiðslan Nord Stream 2 liggur samhliða Nord Stream 1 og var ætlað að tvöfalda innflutning sjóleiðis á gasi frá Rússlandi til Þýskalands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert