Rússar vilja fund um gaslekann í Öryggisráðinu

Leiðslurnar eiga að flytja gas frá Rússlandi til Þýskalands.
Leiðslurnar eiga að flytja gas frá Rússlandi til Þýskalands. AFP/John Macdougall

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun funda um lekann frá Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum á föstudaginn, að fram kom í máli Ann Linde, utanríkisráðherra Svíþjóðar, á blaðamannafundi í dag.

Það voru Rússar sem óskuðu eftir fundinum, en stjórnvöld víða um Evrópu gruna Rússa um að standa að baki skemmdarverkum á gasleiðslunum.

Leiðslurnar liggja um Eystrasalt og eiga að flytja gas frá Rússlandi til Þýskalands. Þær hafa ekki verið í notkun upp á síðkastið, en eru engu að síður fullar af metangasi. Talið er að um 350 þúsund tonn af gasi hafi verið í leiðslunum og að helmingur þess hafi nú þegar sloppið út í andrúmsloftið.

Talskona ut­an­rík­is­ráðuneyt­is Rúss­lands sagði í færslu á samfélagsmiðlum fyrr í dag að Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, yrði að svara fyr­ir það hvort Banda­rík­in beri ábyrgð á lekanum. Þeir hefðu hótað endalokum leiðslnanna ef Rússar réðust inn í Úkraínu.

Talskona Þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna svaraði því til að það væri „fáránlegt“ að krefjast svara frá Biden. Rússar væru þekktir fyrir að dreifa fölskum upplýsingum og væru að gera það núna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert