Innrásin breyti kosningahegðun Rússa í Lettlandi

Krisjanis Karins forsætisráðherra landsins er spáð góðu gengi í kosningunum.
Krisjanis Karins forsætisráðherra landsins er spáð góðu gengi í kosningunum. AFP/Gints Ivuskans

Lettar ganga til þingkosninga í dag. Kannanir gera ráð fyrir því að mið-hægriflokkur Krisjanis Karins forsætisráðherra muni hljóta flest atkvæði. ABC News greinir frá. 

Alls bjóða nítján flokkar fram lista í kosningunum en búist er við að átta muni ná manni inn á þing.

Þá er búist við að stuðningur við þá flokka sem reiða sig á atkvæðum frá Rússum, sem gera 25% íbúa Lettlands, muni minnka frá síðustu kosningum. Talið er að innrás Rússa í Úkraínu þann 24. febrúar síðastliðinn kunni að fæla kjósendur frá flokkunum.

Lettar ganga til kosninga í dag.
Lettar ganga til kosninga í dag. AFP/Gints Ivuskans

Tóku afstöðu gegn stríðinu

Sósíaldemókrataflokkurinn Samlyndi (l. Saskana), sem reiðir sig á atkvæði Rússa, fékk 20% atkvæða í síðustu kosningum og varð í kjölfarið stærsti flokkur lettneska þingsins. Honum er nú spáð rúmum 5% atkvæða.

Flokkurinn tók skýra afstöðu gegn innrás Rússa í Úkraínu sem varð til þess að kjósendur hans sem styðja Rússlandsforseta yfirgáfu flokkinn. Þá er talið að þeir kjósendur hans sem eru á móti stríðinu muni kjósa almenna flokka í kosningum sem hafa einnig tekið afstöðu gegn árásinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert