Telja minnst 35 látna eftir árás á skólastofu

„Stöðvið Hazara-þjóðarmorðið. Það er ekki glæpur að vera sjíta,“ hrópuðu …
„Stöðvið Hazara-þjóðarmorðið. Það er ekki glæpur að vera sjíta,“ hrópuðu konurnar þegar þær þrömmuðu fram hjá Dasht-e-Barchi spítalanum AFP

Minnst 35 eru látin eftir sprengjuárásina í skólastofu í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gærmorgun, samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna. 

Hundruðir nemenda voru að taka próf þegar árásin átti sér stað en samkvæmt fréttaveitu AFP var um sjálfsvígssprengju að ræða.

Tugir kvenna úr Hazara-þjóðflokknum hafa mótmælt í höfuðborginni í dag. Árásin átti sér stað í hverfi sjíta-múslíma og tilheyra margir íbúar á svæðinu þjóðflokknum.

„Stöðvið Hazara-þjóðarmorðið. Það er ekki glæpur að vera sjíta,“ hrópuðu konurnar þegar þær þrömmuðu fram hjá Dasht-e-Barchi spítalanum, þangað sem mörg fórnarlömb árásarinnar voru færð til aðhlynningar.

Um tíu til tutt­ugu pró­sent af Af­gön­um til­heyra Hazara-þjóðflokkn­um en hann hefur verið ofsóttur í Afganistan og  m.a. verið skotmark talíbana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert