OPEC-ríki draga verulega úr olíuframleiðslu

Sádiarabíski orkumálaráðherrann Abdulaziz bin Salman situr blaðamannafund að loknum Vínarfundi …
Sádiarabíski orkumálaráðherrann Abdulaziz bin Salman situr blaðamannafund að loknum Vínarfundi OPEC í dag. AFP/Vladimir Simicek

Ráðherrar OPEC-ríkjanna svokölluðu, 13 stórra olíuframleiðslu og -útflutningsríkja, ákváðu á fundi sínum í Vín í Austurríki í dag að draga verulega úr framleiðslu sinni með það fyrir augum að hækka heimsmarkaðsverð á olíu.

Nemur úrdrátturinn tveimur milljónum tunna á dag frá nóvembermánuði að telja, eftir því sem Amir Hossein Zamaninia, yfirmaður OPEC í Íran, greindi fréttamönnum frá eftir fundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert