Bandaríkin telja Úkraínumenn hafa banað Dúgínu

Alexander Dúgín á minningarathöfn um dóttur sína.
Alexander Dúgín á minningarathöfn um dóttur sína. AFP/Kíril Kúdrjavtsev

Bandaríska leyniþjónustan segir Úkraínumenn hafa staðið á bak við morðið á Daríu Dúgínu, dóttur Alexanders Dúgín, eins helsta bandamanns Rússlandsforseta.

Bandarískur embættismaður greinir dagblaðinu New York Times frá þessu.

Bandarísk stjórnvöld vissu ekki fyrirfram af árásinni sem varð Dúgínu að bana, að sögn embættismannsins, og hafa þau jafnframt greint ríkisstjórn Úkraínu frá óánægju sinni með það.

Stjórn­völd í Úkraínu hafa þvertekið fyr­ir að sér­sveit­ir lands­ins hafi staðið á bakvið morðið, eins og Rússar hafa haldið fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert