Pútín mætir gagnrýni í innsta hring

Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti. AFP/Vladimír Smirnov/Tass

Bandaríska leyniþjónustan hefur fengið upplýsingar um það að innanbúðarmaður í innsta hring embættismanna Vladimír Pútíns Rússlandsforseta hafi gagnrýnt forsetann opinskátt vegna stríðsrekstursins í Úkraínu.

Þessar upplýsingar þóttu það mikilvægar að þær voru tilkynntar Joe Biden Bandaríkjaforseta á daglegum upplýsingafundi hans.

Frá þessu greinir dagblaðið Washington Post í dag.

Sýnir aukna óánægju með stríðsreksturinn 

Opinber gagnrýni háttsetts embættismanns þykir sýna eflaust betur en nokkuð annað þreytuna og óánægjuna með framgang þessa stríðs sem hefur litlu skilað nema slæmu orðspori Rússlands.

Leiftursókn Úkraínumanna í hernumin svæði Rússa í Úkraínu þvinguðu Pútín til að koma á herskyldu í landinu, sem hefur ekki aflað honum neinna vinsælda heima fyrir.

Þrátt fyrir kosningar og yfirtöku leppsvæða Rússa í Úkraínu, með tilheyrandi hátíðahöldum í Moskvu, þá virðist rússneskur almenningur farinn að setja spurningarmerki við stríðsreksturinn.

Frá Bakmút í Austur-Úkraínu í dag.
Frá Bakmút í Austur-Úkraínu í dag. AFP/Yasuyoshi Chiba

Sundrung í nánasta hringnum

Í upplýsingum bandarísku leyniþjónustunnar kemur fram að téður embættismaður hafi lýst yfir óánægju sinni með slælega stjórnun í stríðinu og mistök sem hafa verið gerð í kjölfarið.

Ekki hafa fengist neinar upplýsingar um hver viðkomandi embættismaður er, en þó mun nafn hans vera í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar.

Talið er að meiri sundrungu sé nú að finna í nánasta hring Pútíns en áður á 22 ára valdatíð hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert